A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
22.03.2016 - 14:16 | Vestfirska forlagið,bb.is

Átti ekki fyrir trúlofunarhringnum

Fjallkonan Kristín Dahlstedt (Jónsdóttir) frá Botni í Dýrafirði. Vestfirska forlagið gaf út að nýju fyrir nokkrum árum.
Fjallkonan Kristín Dahlstedt (Jónsdóttir) frá Botni í Dýrafirði. Vestfirska forlagið gaf út að nýju fyrir nokkrum árum.
« 1 af 2 »
Langalangömmubarn Kristínar Dahlstedt (Jónsdóttir) frá Botni í Dýrafirði, Hera Fjölnis Guðbrandsdóttir Fjord, leitar eftir bréfum Kristínar sem hugsanlega leynast í fórum fólks. Kristín var heitbundin skáldinu frá Þröm, Magnúsi Hjaltasyni en hann var fyrirmynd Halldórs Laxess að Ólafi Kárasyni Ljósvíkingi. Magnús hins vegar treysti sér ekki í fjármögnun á trúlofunarhringnum og þá sleit Kristín sambandi við hann. Hún fór síðan með kútternum Daníu til Danmerkur og lærði þar ýmislegt um hótel- og veitingarekstur. Þegar hún kom heim aftur árið 1905 réðst hún til starfa á Hótel Reykjavík en það brann árið 1915 og fljótlega eftir það stofnaði hún sinn eigin veitingastað að Laugavegi 68. 

Kristín var kjörkuð og glæsileg kona sem samkvæmt bestu heimildum eldaði hún oft grátt silfur við embættismenn, einkum lögregluna, og þótti talsvert frjálsleg í samskiptum sínum við karlpeninginn. Hún eignaðist þrjú börn með þremur körlum og giftist ekki fyrr en á seinni árum. Endurminningar hennar komu út 1961 og vöktu mikla athygli enda brautryðjandi um margt. Kristín lést árið 1968. 

Hera sem er leikkona og leikskáld fyrir utan að vera langalangömmubarn Kristínar vinnur nú að því að setja upp leikverk um líf Kristínar og safnar því meiri heimildum. Heimili Kristínar brann í tvígang og þar með glötuðustu miklar heimildir en hugsanlega leynast frá henni bréf annars staðar. Hægt er að ná sambandi við Heru á facebooksíðu hennar
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31