A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
Hrafnseyri við Arnarfjörð.   Í baksýn fjallið Ánarmúli. Ljósm.: Hallgrímur Sveinsson.
Hrafnseyri við Arnarfjörð. Í baksýn fjallið Ánarmúli. Ljósm.: Hallgrímur Sveinsson.

Sunnudaginn 15. nóv. 2015 fór oddviti Auðkúluhrepps í eftirlitsferð um Arnarfjörð með fríðu föruneyti. Framan af degi var sól um allan fjörð og fallegt haustveður. Þykknaði upp er leið á daginn.

   Fyrst var komið við á fæðingarstað Jóns Sigurðssonar og Hrafns Sveinbjarnarsonar læknis og goðorðsmanns, sem einn örfárra forystumanna á Sturlungaöld stundaði ekki mannvíg. Hann hafði líknandi hendur og tók marga til sín sem þurftu á sjúkrahúsvist að halda, auk þeirra sem hann læknaði á ferðum sínum. Enda talinn fyrsti lærði læknir hér á landi. Hann hafði tvö skip í förum. Annað á Arnarfirði og hitt á Breiðafirði. Þetta voru nokkurs konar ferjur og fengu allir ókeypis far yfir firðina sem þurftu. Svo segir sagan.

   Myndin sýnir staðarins hús. Í baksýn fjallið Ánarmúli. Á toppi þess er Án rauðfeldur, maðurinn hennar Grelaðar, talinn heygður. Þar af nafnið. Þau settust fyrst að í Dufansdal. Þar þótti henni illa ilmað úr jörðu. Hún heimtaði af kallinum að hann flytti yfir fjörðinn að Eyri. Þar þótti henni hunangsilmur úr grasi.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30