A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
24.02.2017 - 19:46 | Vestfirska forlagið,Landssamband Fiskeldisstöðva,Björn Ingi Bjarnason

Arctic Fish fær nýjan vinnubát til Þingeyrar

Hafnarnes í Reykjavíkurhöfn.
Hafnarnes í Reykjavíkurhöfn.
« 1 af 2 »

Í vikunni kom til Íslands nýr vinnubátur fyrir Arctic Fish.  Báturinn er smíðaður í Póllandi og er 16 metra langur og 9 metra breið tvíbytna.  Hann hefur fengið nafnið Hafnarnes og verður með heimahöfn á Þingeyri.  Hafnarnes er afar vel búinn vinnubátur og er koma hans til marks um þá fagmennsku sem einkennir uppbyggingu fiskeldisins á Íslandi.  Þátttaka erlendra fiskeldisfyrirtækja í uppbyggingunni hér á landi leiðir til þess að fyrirtækin á Íslandi fá æ betri búnað og verkfæri og eykur það á öryggi í kringum eldið, bæði fyrir fiska og menn.

Meðfylgjandi myndir voru teknar af Hafnarnesinu í Reykjavíkurhöfn í gær.  

Landssamband Fiskeldisstöðva óskar eigendum og starfsmönnum Arctic Fish til hamingju með nýja bátinn og vona að hann reynist happafley hið mesta.


 

Af; www.lf.is


 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30