A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
24.02.2017 - 08:17 | Vestfirska forlagið,Morgunblaðið,Björn Ingi Bjarnason

And­lát: - Ásgeir Guðbjarts­son

Ásgeir Guðbjarts­son (1928 - 2017).
Ásgeir Guðbjarts­son (1928 - 2017).
« 1 af 2 »

Ásgeir Guðbjart­ur Guðbjarts­son, „Geiri á Gugg­unni“, skip­stjóri og út­gerðarmaður, lést miðvikudaginn, 22. febrúar 2017, á Sjúkra­hús­inu á Ísaf­irði á 89. ald­ursári.

Ásgeir fædd­ist 31. júlí 1928 í Kjós í Grunna­vík­ur­hreppi. For­eldr­ar hans voru Jón­ína Þ. Guðbjarts­dótt­ir, hús­freyja, og Guðbjart­ur Ásgeirs­son, formaður og út­gerðarmaður.

Ásgeir flutti ung­ur með for­eldr­um sín­um til Hnífs­dals og síðan til Ísa­fjarðar þar sem hann ólst upp. Hann var ný­fermd­ur þegar hann byrjaði fyrst til sjós og var á drag­nót upp á hálf­an hlut. Ásgeir vann um tíma hjá Norður­tang­an­um og við beit­ingu. Sex­tán ára gam­all fór hann að róa upp á heil­an hlut á línu-, troll- og síld­ar­bát­um.

Ásgeir tók hið minna fiski­manna­próf á Ísaf­irði 1948 og byrjaði fer­il sinn sem skip­stjóri á Bryn­dísi ÍS tví­tug­ur að aldri. Þá hafði hann verið stýri­maður í tvö ár. Ásgeir tók hið meira fiski­manna­próf í Stýri­manna­skól­an­um í Reykja­vík árið 1965.

Hann stofnaði út­gerðarfé­lagið Hrönn hf. á Ísaf­irði ásamt fleir­um árið 1956 en það gerði út sjö báta og tog­ara sem báru nafnið Guðbjörg ÍS. Útgerðin lét m.a. smíða fyr­ir sig frysti­tog­ara árið 1994 sem þá var tal­inn vera eitt full­komn­asta fiski­skip í heim­in­um. Ásgeir hætti til sjós árið 1995 þegar hann var 67 ára gam­all. Þá var hann bú­inn að vera skip­stjóri í meira en 45 ár.

Ásgeir var af­burða aflamaður og harðsæk­inn. Hann var afla­kóng­ur á Ísaf­irði á sex­tán vetr­ar­vertíðum sam­fleytt og eins var hann oft afla­kóng­ur á Vest­fjörðum. Ásgeir var sæmd­ur ridd­ara­krossi fálka­orðunn­ar 17. júní 1991.

Ásgeir kvænt­ist Sig­ríði Guðmundu Brynj­ólfs­dótt­ur (f. 1931, d. 2009) á jóla­dag 1949. Þau eignuðust fjög­ur börn, Guðbjart, f. 1949, Guðbjörgu, f. 1950, Krist­ínu Hjör­dísi, f. 1952 og Jón­ínu Brynju, f. 1953.

 

Morgunblaðið 24. febrúar 2017.


« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31