A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
31.10.2013 - 20:50 | Tilkynning

79. Hjóna- og paraball Dýrfirðinga

Frá Hjónaballi. Mynd: Davíð Davíðsson
Frá Hjónaballi. Mynd: Davíð Davíðsson
79. Hjóna- og paraball Dýrfirðinga verður haldið í Félagsheimilinu á Þingeyri laugardaginn 2.nóvember 2013.

Húsið opnar klukkan 19:30 og borðhald hefst klukkan 20:00.

Matseðillinn er ekki af verri endanum. Í forrétt verða tveir fiskréttir, í aðalrétt verður hangikjöt, léttreykt svínakjöt og lambalæri, allt með tilheyrandi meðlæti, og eftir matinn verður boðið upp á kaffi, konfekt og kökur.

Þekktir einstaklingar stíga á stokk og flytja gamanmál en veislustjóri verður "statusa-drottning fésbókarinnar" og heysafnarinn Helga Guðný Kristjánsdóttir, bóndi í Botni í Súgandafirði.

Að borðhaldi loknu leikur stórsveit Stefáns Jónssonar fyrir dansi þar til skemmtanaleyfið rennur út.

Forsala miða og borðapantanir verður laugardaginn 2.nóvember kl. 13:00-14:00.

Vegna forfalla eru nokkrir miðar lausir á borðhald - miðapantanir í síma 869-4993

18 ára aldurstakmark er á dansleik.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30