13.07.2017 - 06:34 | Björn Ingi Bjarnason,Blaðið - Vestfirðir,Kristinn H. Gunnarsson,Vestfirska forlagið
		
	59% fækkun á Flateyri - 44% á Þingeyri
	
		Áfundi starfshóps um breytingar á reglum um byggðakvóta var lögð fram tafla um íbúaþróun í nokkrum vestfirskum byggðarlögum frá því að kvótakerfið var tekið upp. 
Borinn er saman íbúafjöldi á árunum 1980-83 og 2013-16.
Þar kemur fram fækkun hefur orðið í öllum byggðarlögunum og mestur í þorpunum í vestur Ísafjarðarsýslu.
Á Flateyri fækkaði íbúum um 59% og 44% á Þingeyri. Á Suðureyri fækkaði um 43%. Mest varð fækkunin íbúum talið í Bolungavík eða um 373 manns og á Patreksfirði fækkaði um 335 manns.
Ísafjörður er ekki með í töflu starfshópsins en samkvæmt upplýsingum á vef Hagstofu Íslands voru íbúarnir að meðaltali 3.394 á tímabilinu 1980-83 og fækkaði um 835 fram til 2013-16 eða um 25%. Íbúarnir voru seinna tímabilið að meðaltali 2.559.
Blaðið Vestfirðir 13. júlí 2017.