A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Dýrfirðingurinn Sigurður Þórðarson.
Dýrfirðingurinn Sigurður Þórðarson.
« 1 af 2 »

Eldri félagar Karlakórs Reykjavíkur fögnuðu því í morgun, laugardagin 3. janúar, að fimmtíu ár verða liðin hinn 14. október 2015 síðan Dýrfirðingurinn Sigurður Þórðarson, sem fæddur var að Gerðhömrum þann 8. apríl 1895 og bjó síðan á Söndum, stofnaði deild eldri félaga innan kórsins þann 14. október 1965.

Hittust þeir í Fossvogskirkjugarði við leiði Sigurðar, eiginkonu hans Áslaugar Sveinsdóttur frá Hvilft í Önundarfirði og tvegga barna þeirra sem dóu í æsku.  Heiðruðu þeir minningu hans og þeirra með laginu  -Ísland, Ísland eg vil syngja-  eftir Sigurð við ljóð Huldu.

Dagsetningin var ekki úr lausu lofti gripin því Sigurður stofnaði Karlakór Reykjavíkur þann 3. janúar 1926, ásamt 36 félögum sínum. Frá þeim tíma var saga Sigurðar og Karlakórs Reykjavíkur samofin hvor annarri í 36 ár en frá árinu 1926 til 1962 var Sigurður stjórnandi kórsins.

Sjá þessa slóð:
http://www.mbl.is/frettir/innlent/2015/01/03/eldri_felagar_fognudu_saman/

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31