A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
21.05.2015 - 16:18 | Lýður Árnason

Þjóðareign eða ekki.is

Lýður Árnason.
Lýður Árnason.

Eitt mesta þrætuepli þessarar þjóðar er sjávarútvegsmál. Ráðamenn og forsvarsmenn útgerðarinnar segja önnur lönd líta hingað öfundaraugum og vísa í kvótakerfið. Þjóðin lýsir öndverðri skoðun, margsinnis í skoðanakönnunum og í þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja stjórnarskrá 2012. Ein meginkrafan er auðlindaákvæði í stjórnarskrá sem tryggir þjóðinni yfirráð yfir auðlindum sínum og nýtingu þeirra. Það er umhugsunarvert hvers vegna fulltrúar þjóðarinnar á Alþingi skuli forgangsraða umdeildum lagafrumvörpum um auðlindamál fram yfir leiðbeinandi ákvæði í stjórnarskrá. Veður þjóðin í villu eða láta rök útgerðarinnar svona vel í eyrum?

 

Kvótakerfið með sértækri úthlutun á veiðirétti hefur ríkt í aldarfjórðung. Reynslan kætir útgerðina, ekki þjóðina. Gjáin á milli ólíkra sjónarmiða kristallaðist á síðasta kjörtímabili í svonefndri fyrningarleið sem þáverandi stjórnarflokkar boðuðu. Hún átti að taka af útgerðunum veiðiréttinn með 20 ára aðlögunartíma og bjóða hann upp á almennum markaði. Frá þessu var snúið og kynnt sú leið að tryggja útgerðinni einokun á veiðirétti til a.m.k. 20 ára. Fékk viðsnúningurinn nafnið "Sáttaleið". Hvað honum olli er ráðgáta en sú spurning vaknar hvort fulltrúalýðræðið sé yfirhöfuð nógu öflugt til að sporna gegn ofríki og spillingu.

 

Forsvarsmenn fyrirtækja reyna að hámarka arð hluthafanna. Sama gildir um þjóðarauðlindir, arð þeirra þarf að hámarka fyrir eigandann og það er best gert með því að láta þá sem hyggjast nýta auðlindirnar ákveða sjálfa verð aðgöngumiðans á almennum markaði. Þjóðarbúið þarf jú á öllu sínu að halda og einkaframtakið er þeim galdri gætt að finna sér alltaf leið enda mun fiskurinn verða hér áfram þótt ákvæði um auðlindir verði sett í stjórnarskrá.

 

Að lokum þetta: Festi Alþingi í sessi einokun á veiðirétti mun það hvorki skapa fyrirsjáanleika né eyða óvissu í sjávarútvegi. Henni verður ekki eytt nema með meirihlutaákvörðun þjóðarinnar. Sú ein getur verið markandi til framtíðar. Þess vegna hvet ég fólk til að skrifa undir áskorun þessa efnis á þjóðareign.is.

 

Lýður Árnason.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31