A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
28.05.2019 - 18:09 | Hallgrímur Sveinsson

Skúlaskeið eftir. Grím Thomsen

Grímur Thomsen 1820-1896. Ljósm. Mbl.
Grímur Thomsen 1820-1896. Ljósm. Mbl.
Skúlaskeið lærðu flestir sem í barnaskóla gengu í gamla daga utanað. Skyldu margir af unglingum dagsins kannast við þetta mikla kvæði stórskaldsins í dag? Vonandi er svo.

Þeir eltu hann á átta hófahreinum

og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar

en Skúli gamli sat á Sörla einum

svo að heldur þótti gott til veiðar.


Meðan allar voru götur greiðar

gekk ei sundur með þeim og ei saman,

en er tóku holtin við og heiðar

heldur fór að kárna reiðargaman.


Henti Sörli sig á harða stökki,

hvergi sinnti hann gjótum, hvergi grjóti,

óð svo fram í þykkum moldarmekki,

mylsnu hrauns og dökku sandaróti.


Þynnast bráðum gerði fjandaflokkur,

fimm á Tröllahálsi klárar sprungu,

og í Víðikerum var ei nokkur

vel fær nema Jarpur Sveins í Tungu.


Ei var áð og ekkert strá þeir fengu,

orðnir svangir jóar voru og mjóir,

en - þótt miðlað væri mörum engu,

móðurinn þó og kraftar voru nógir.


Leiddist Skúla, leikinn vildi hann skakka,

ljóp við Ok úr söðli og fastar gyrti.

Strauk hann Sörla um brjóst og stinnan makka,

sté á bak og svo á klárinn yrti:


Sörli minn! Þig hef ég ungan alið

og aldrei valið nema besta fóður.

Nú er líf mitt þínum fótum falið,

forðaðu mér nú undan, klárinn góður?


Það var eins og blessuð skepnan skildi

Skúla bæn því háls og eyru hann reisti,

frýsaði hart - og þar með gammurinn gildi

glennti sig og fram á hraunið þeysti.


Á kostum Sörli fór í fyrsta sinni,

furðar dverga hve í klungrum syngur.

Aldrei hefur enn í manna minni

meira riðið nokkur Íslendingur.


Tíðara Sörli en sendlingur á leiru

sinastælta bar í gljúfrum leggi,

glumruðu Skúla skeifurnar um eyru,

skóf af klettunum í hófahreggi.


Rann hann yfir urðir eins og örin

eða skjótur hvirfilbylur þjóti.

Ennþá sjást í hellum hófaförin,

harðir fætur ruddu braut í grjóti.


Örðug fór að verða eftirreiðin,

allir hinir brátt úr sögu detta.

En ekki urðu fleiri Skúla skeiðin,

skeið hans fyrsta og síðasta var þetta.


Hann forðaði Skúla undan fári þungu,

fjöri sjálfs sín hlífði klárinn miður -

og svo með blóðga leggi, brostin lungu

á bökkum Hvítár féll hann dauður niður.


Sörli er heygður Húsafells í túni,

hneggjar þar við stall með öllum tygjum,

krafsar hrauna salla blakkurinn brúni,

bíður eftir vegum fjalla nýjum

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30