29.03.2016 - 11:25 | skutull.is
Vestfjarðatíðindi komin út
Vestfjarðatíðindi eru komin út á ný. Páskablaðið, 1. hefti 2016, er gefið út sem vefrit. Vestfjarðatíðindi eru málgagn Vestfirska forlagsins undir ritstjórn Hallgríms Sveinssonar forleggjara í Dýrafirði. Hann segir vefritið ætlað öllum þeim er unna Vestfjörðum á einhvern hátt. ,,Því er ætlað að kynna mannlíf og sögu kynslóðanna á þessum hluta landsins, sem sumir telja óbyggilegan. Er það sams konar efni og Vestfirska forlagið hefur birt í útgáfubókum sínum og ritum, sem nú eru komin á fjórða hundrað talsins. Auk þess fjallar vefritið um ýmis mál sem eru efst á baugi í þjóðfélaginu. Sumt af efni þess hefur áður birst á Þingeyrarvefnum," segir í kynningu frá útgefanda. Vestfjarðatíðindi koma fram á sínum eigin forsendum og eru engum háð. Umbrot blaðsins annast Nína Ivanova.
Blaðið má sjá með því að smella hér.
Blaðið má sjá með því að smella hér.