A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
24.02.2016 - 22:12 | Vestfirska forlagið,bb.is

Verkís óskar eftir gerð deiliskipulags vegna Dýrafjarðarganga

Lega Dýrafjarðarganga.
Lega Dýrafjarðarganga.
Verkfræðistofan Verkís hefur fyrir hönd Vegagerðarinnar óskað eftir heimild Ísafjarðarbæjar til að láta gera deiliskipulag við báða jarðgangamunna væntanlegra Dýrafjarðarganga. Í erindi sem tekið var fyrir á fundi skipulags- og mannvirkjanefndar bæjarins í morgun er sagt að ákveðið hafi verið að hefjast handa við gerð ganganna á næsta ári og vegna þess þurfi að koma upp aðstöðu beggja vegna ganga í Dýrafirði og Arnarfirði. Þó svo að þau mannvirki verði þar einungis tímabundið þurfi að vinna deiliskipulag sem taki mið af því að þar sé hægt að sækja um byggingarleyfi vegna aðstöðu þeirra er framkvæmdinni fylgja, svo sem fyrir verkstæði, geymslur, svefnskála, skrifstofuhúsnæði og malbikunarstöð. 

Vegagerðin hefur ráðið teiknistofuna Eik sem skipulagsráðgjafa við gerð deiliskipulagsins. Í erindinu var óskað eftir afstöðu Ísafjarðarbæjar sem fyrst. Nefndin leggur til við bæjarstjórn að erindið verði samþykkt. 

annska@bb.is 
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31