A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
25.04.2015 - 09:20 | Fjórðungssamband Vestfirðinga

Umsóknarfrestur í Uppbyggingarsjóð framlengdur til 11. maí

Umsóknarfrestur í hinn nýja Uppbyggingarsjóð Vestfjarða sem leysir af hólmi Menningarráð Vestfjarða og Vaxtarsamning Vestfjarða hefur verið framlengdur til og með mánudeginum 11. maí næstkomandi. Uppbyggingarsjóður varð til með samningi ríkis og Fjórðungssambands Vestfirðinga um Sóknaráætlun Vestfjarða 2015-2019 og verður nú í vor úthlutað í fyrsta skipti úr sjóðnum. Til ráðstöfunar í úthlutun eru um það bil 60 milljónir að þessu sinni, sem er svipuð upphæð og úthlutað var á grundvelli menningar- og vaxtarsamninga á síðasta ári.

 

Veittir verða stofn- og rekstrarstyrkir til menningarstofnana, verkefnastyrkir til menningarmála og verkefnastyrkir til atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefna. Nýbreytni er að hægt er að sækja um stærri styrki til lengri tíma en áður, allt að þremur árum. Skila verður umsóknum á þar til gerðu umsóknareyðublaði sem er að finna ásamt frekari upplýsingum og úthlutunarrreglum hér á vef Fjórðungssambands Vestfirðinga – www.vestfirdir.is/Uppbyggingarsjodur.

 

Samþykkt hefur verið að árið 2015 verði litið sérstaklega til verkefna sem uppfylla eitt eða fleiri eftirfarandi skilyrða:

 

a)  Verkefni sem efla nýsköpun og atvinnuþróun á svæðinu og stuðla að stofnun nýrra fyrirtækja sem byggja á nýsköpun, einnig vöru- og gæðaþróun í starfandi fyrirtækjum

b)  Verkefni sem stuðla að nýsköpun, fjölbreytni og aukinni fagmennsku í menningarstarfi

c)  Verkefni sem fjölga eða styðja við atvinnutækifæri á sviði lista og menningar

d)  Verkefni sem efla samstarf á sviði menningarmála á svæðinu

e)  Verkefni sem styðja við uppbyggingu og eflingu menningartengdrar ferðaþjónustu

f)  Verkefni sem skapa viðskiptatækifæri og verðmæti á sviði skapandi greina g)  Verkefni sem skapa störf fyrir háskólamenntaðar konur eða stuðla að fjölbreyttari atvinnutækifærum fyrir ungt fólk á svæðinu

h)  Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni sem auka útflutningstekjur eða eru gjaldeyrisskapandi

i)   Atvinnuþróunar- og nýsköpunarverkefni á sviði líftækni

j)   Verkefni sem byggja á samstarfi fyrirtækja og rannsóknaraðila, þ.m.t. háskólastofnana

 

Hægt er að hafa samband og senda umsóknir rafrænt á netfangið uppbygging@vestfirdir.is. Starfsmenn Fjórðungssambands Vestfirðinga veita ráðgjöf við gerð umsókna í Uppbyggingarsjóð og sama gildir um starfsmenn Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30