Trönuspjall í Svartakletti á Stokkseyri sunnudaginn 25. nóvember kl. 15:00
Síðasti dagur listmálarans Elfar Guðna Þórðarsonar á
sýningunni Frá Djúpi til Dýrafjarðar verður sunnudaginn 25.
nóvember n.k. Þar hefur hann sýnt glæsilegar Vestfjarðamyndir sem hann málaði í
haust þegar hann og eiginkonan Helga Jónasdóttir dvöldu í þrjár vikur í
Mannlífs- og menningarsetri Önfirðingafélagsins að Sólbakka á Flateyri.
Elfar Guðni hefur sagt frá hinum mögnuðu áhrifum sem vestfirska náttúran hafí á hann og jafnvel gerði hann verklausan af hrifningu. Hefur þessu verið líkt við ofsælu. Til þess að gera betur grein fyrir þessari upplifun og áhrifum verður boðið til “Trönuspjalls” í sýningarsal Elfars Guðna, Svartakletti í Menninagrverstöðinni á Stokkseyri, sunnudaginn 25. nóvember n.k. kl. 15:00
Trönuspjallið leiða Stokkseyringarnir innfæddu; Elfar Guðni Þórðarson og Guðbrandur Stígur Ágústsson og Flateyringarnir innfæddu; Björn Ingi Bjarnason og Björn E. Hafberg. Allir hafa þeir búið á Stokkseyri, í mislangan tíma þó. Guðbrandur Stígur bjó á Patreksfirði um tíma og Elfar Guðni hefur dvalið á Sólbakka í fjórgang.
Allir hjartanlega velkomnir.