12.12.2016 - 14:40 | bb.is,Edinborgarhúsið,Vestfirska forlagið
Stofnun Rögnvaldar Á Ólafssonar - aðalfundur
Aðalfundur Stofnunar Rögnvaldar verður haldinn í kvöld, mánudaginn 12. desember 2016, í Rögnvaldarsal á 2. hæð í Edinborgarhúsinu.
Á dagskrá fundarins, sem hefst kl. 20, eru venjulega aðalfundarstörf.
Auk þess kynnt verður nýútkomin bók Björns G Björnssonar sem ber heitið -FYRSTI ARKITEKTINN- og fjallar um ævi og störf Dýrfirðingsins Rögnvaldar Á Ólafssonar.
Einnig mun Jóna Símonía Bjarnadóttir sagnfræðingur segja frá bókinni -AF NORSKUM RÓTUM- sem út kom fyrir nokkrum árum og kynntur verður undirbúningur að sumarskóla í vistvænum arkitektúr sem stofnunin stendur fyrir.
Boðið verður uppá kaffi og meðlæti sem hæfir aðventunni og jólaglögg fyrir þá sem það vilja.
Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir!