A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
03.07.2008 - 00:16 | eöe

"Stjörnugolf" í Meðaldal.

Þorsteinn og Logi Bergmann dáðst að 7. holu.
Þorsteinn og Logi Bergmann dáðst að 7. holu.
Um klukkna 23:00 í gærkvöldi lenti einkaflgvél á Þingeyrarflugvelli með fjóra golfara og sjónvarpsupptökulið innanborðs. Golfararnir voru Logi Bergmann Eiðsson (betur þekktur sem fréttaþula), Eyjólfur Kristjánsson (Eurovisionfari með meiru), Ragnhildur Sigurðardóttir (Íslandsmeistari kvenna í golfi) og Þorsteinn Hallgrímsson (margfaldur meistari í golfi). Hópurinn var kominn í Dýrafjörðinn til að leika eina holu á golfvelli Glámu í Meðaldal en hópurinn ætlaði sér að spila eina holu á alls átján golvöllum (par 71) hringinn í kringum landið á 24 klukkustundum.

Fjórmenningarnir, sem mynda tvö lið (Logi og Ragnhildur gegn Eyjólfi og Þorsteini), léku hina margrómuðu sjöundu braut/holu (par 3) á Meðaldalsvelli og héldu sérfræðingarnir að sunnan varla vatni yfir glæsileika og fegurðinni sem fylgir sjöundu braut/holu. Texas skramble var keppnisfyrirkomulag golfaranna sem léku holuna á pari.

Til Dýrafjarðar kom hópurinn frá höfuðborgarsvæðinu og eftir tæplega klukkustundar stopp í Dýrafirði var haldið áleiðis til Ísafjarðar og þaðan á Sauðárkrók og svo koll af kolli. Golfleiðangurinn er liður í áheitasöfnun til góðgerðamála og verður ferðinni hringinn í kringum landið gerð góð skil í þætti í umsjón Loga Bergmans á Stöð 2 næsta miðvikudag.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30