Stjórnmálahringekjan: - Utanþingsstjórn í pípunum í Vestfirsku Ölpunum
Eins og skýrt var frá um daginn, eru hinar framliðnu hreppsnefndir í Vestfirsku Ölpunum nú tilbúnar með utanþingsstjórn í bakhöndinni til að gauka að forseta lýðveldisins. Þegar stjórnarmyndun dregst svona á langinn hjá alþingismönnum, gæti farið svo að hann verði að grípa til sinna ráða. Á það mun náttúrlega ekki reyna fyrr en í lengstu lög. Allt hefur sinn tíma. Forsetar vorir hafa stundum verið með slíkar stjórnir uppi í erminni þegar baktjaldamakkið hefur gengið hægt.
Þess er að minnast að það var utanþingsstjón Björns Þórðarsonar sem stóð formlega fyrir stofnum lýðveldis á Íslandi 17. júní 1944. Hún var eina utanþingsstjórnin í sögu Íslands til þessa. Sú stjórn starfaði í tæp tvö ár og stóð sig bara vel eins og margir muna.
Það flýgur fyrir að hreppsnefndirnar hafa samþykkt málaskrá sem þær telja rétt að stjórnin hafi til hliðsjónar í störfum sínum. Er hún trúnaðarmál eins og er.
Þó hefur eftirfarandi lekið út:
- Aðskilja ber ríki og spillingu.
- Við verðum að hætta að bruðla.
- Bannað verði að henda mat.
- Öllum sem lepja dauðann úr skel skal hjálpa til sjálfshjálpar ef hægt er.
- Bankaleynd verði afnumin af peningahreyfingum yfir 100 milljónum króna.
- Allir ráðherrar stjórnarinnar eiga að segja nei þegar það á við.
- Vandi þjóðfélagsins er sá að Íslendingar eiga mikið meira en nóg af öllu Á HEILDINA LITIÐ.
- Til að þjóðin fari ekki á límingunum þarf AÐ JAFNA LÍFSKJÖRIN.
- Þjóðfélagið er orðið allt of flókið. Almenningur skilur oft ekki hvað snýr upp og hvað niður.
- Niður með heimtufrekju og græðgi. Upp með hagsmuni almennings!
Ráðherrabílar skulu seldir. Ráðherrarnir aki að jafnaði í vinnuna á sínum eigin bílum. Eða fara bara gangandi ef stutt er að fara. Ef nauðsyn krefur hringi þeir í leigubíl.
Ráðherralisti stjórnarinnar verður ekki birtur að sinni eins og skiljanlegt er. En þar verður valinn maður í hverju rúmi ef til kemur.