A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
Gleði í Lambhaganum á Selfossi. F.v.: Gerður Matthíasdóttir, Jóna G. Haraldsdóttir, Ólafur Bjarnason, Kristín Friðriksdótttir og Stefán Magnússon.
Gleði í Lambhaganum á Selfossi. F.v.: Gerður Matthíasdóttir, Jóna G. Haraldsdóttir, Ólafur Bjarnason, Kristín Friðriksdótttir og Stefán Magnússon.
« 1 af 4 »

Dýrfirsku hjónin, Gerður Matthíasdóttir og Ólafur Bjarnason, sem búa í Lambhaga á Selfossi og hafa búið í bænum frá 1975, buðu til sólarfagnaðar að vestfirskum sið vegna hækkandi sólar og jafnframt í tilefni sigurs Íslands í Icesave-málaferlunum er lauk í morgun. Á borðum voru rjóma- og sykraðar pönnukökur ásamt sörum.

 

Til fagnaðrins var boðið Önfirðingunum á Eyrarbakka; Jónu G. Haraldsdóttur og Birni Inga Bjarnasyni sem hafa búið við Ströndina frá 1999. Sérstakir gestir voru síðan norðlensku hjónin; Stefán Magnússon, Eyfirðingur og Kristín Friðriksdóttir frá Dalvík en þau hafa búið á Selfossi frá 1959.

 
Í lokin var síðan skálað fyrir hækkandi sól og Icesavesigri.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30