Skrifaði undir samning um árangursstjórnun við Landhelgisgæsluna
Ólöf Nordal innanríkisráðherra og Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslu Íslands, skrifuðu í dag undir árangursstjórnunarsamning ráðuneytisins og LHG þegar ráðherra heimsótti stofnunina. Forstjórinn og nokkrir starfsmenn Landhelgisgæslunnar kynntu helstu þættina í starfseminni fyrir ráðherra og fylgdarliði.
Í árangursstjórnunarsamningnum er kveðið á um gagnkvæmar skyldur samningsaðila um að lögbundin verkefni stofnunarinnar séu unnin á faglegan og hagkvæman hátt. Einnig skerpir hann á áherslum um stefnumótun, framkvæmd verkefna og áætlunargerð. Er samningnum þannig ætlað að styrkja beitingu árangursstjórnunar sem stýritækis innan Landhelgisgæslunnar. Sett eru fram markmið og áherslur í samningnum um löggæslumál, varnarmál, stjórnsýslu, mannauð, fjármál og fleira. Samningurinn gildir í fimm ár.
Innanríkisráðherra kynnti sér einnig starfsemi Landhelgisgæslunnar og leit við í sjómælingadeild og stjórnstöð Gæslunnar auk þess að heimsækja flugrekstrardeildina í flugskýlinu á Reykjavíkurflugvelli.
Innanríkisráðuneytið.