A A A
  • 1922 - Gunnlaugur Sigurjónsson
  • 1974 - Þorleifur Kristján Sigurvinsson
  • 1980 - Var Jhon Lennon myrtur í New York
13.03.2015 - 19:24 | BIB,bb.is

Skaut tófu út um svefnherbergisgluggann

Séð heim að Mýrum. Ljósm.: BIB
Séð heim að Mýrum. Ljósm.: BIB
« 1 af 3 »
Rétt fyrir miðnætti á miðvikudagskvöld, 11. mars 2015, varð Elínbjörgu Snorradóttur húsfrú á Mýrum í Dýrafirði, litið út um svefnherbergisgluggann og sá til tófu í snjónum ofan við bæinn. Bergsveinn Gíslason bóndi á Mýrum brá skjótt við og greip byssu sína, sem nú orðið hvílir við rúmstokkinn og skaut tófuna út um svefnherbergisgluggann. Er þetta fjórða tófan sem skotin er á þennan hátt á Mýrum, þrjár féllu í fyrravetur. Á Mýrum er eitt stærsta æðarvarp landsins og til að vel takist til með æðarvarp og dúntekju þarf að bægja tófunni frá sem og öðrum vargi. Í Dýrafirði eru þrjú stór æðarvörp; á Mýrum, á Læk og á Hólum. 

Í samtali við bb.is í fyrrasumar sagði Valdimar Gíslason á Mýrum að tófunni hafi fjölgað gríðarlega. „Ástæðan fyrir fjölguninni er að það eru ekki unnin greni lengur eins og var gert allt frá landnámsöld. Menn voru á tímakaupi við að vinna greni en eftir sameiningu sveitarfélaganna hafa þessi mál verið í ólestri,“ sagði hann. Hann skoraði jafnframt á bæjarstjórn að koma grenjavinnslu í lag og hans mat var að fyrst um sinn þyrfti að stunda vetrarveiði samhliða grenjavinnslu. 
« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31