A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
15.06.2015 - 20:15 | Blaðið - Vestfirðir,BIB

Síðasta stúdíóferð Jóns. Kr. Ólafssonar

« 1 af 2 »

Jón Kr. Ólafsson, söngvari á Bíldudal, hefur farið í sína síðustu stúdíóferð.  Jón Kr. , sem er að verða  75 ára, gerði sér ferð á dögunum til þess að taka upp eitt lag  -Besame Mucho-, sem samið var árið 1940 af mexikönskum tónlistarmanni.


Jón Kr. sagði í samtali við blaðið Vestfirðir að hann hefði ákveðið að láta þetta verða endapunktinn á útgáfunni. Kvaðst hann vera ánægður með útkomuna. Undirleik önnuðust Pétur Valgarð Pétursson, Þórir Úlfarsson, Jóhann Ó. Hjörleifsson, Óli Kristjánsson og Óskar Guðjónsson.

Diskurinn er einungis til í 60 eintökum og er til sölu á safninu hjá Jóni Kr. Ólafssyni á Bíldudal.

 

Vestfirska forlagið á Þingeyri gaf út ævisögu Jóns Kr. Ólafssonar árð 2008 – Melódíur minninganna- sem Hafliði Magnússon frá Bíldudal skráði.

                

Blaðið Vestfirðir 11. júní 2015

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30