A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
16.06.2017 - 08:10 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

SÝNING Á VERKUM LISTAHJÓNANNA FRÁ HOFI

Núpur í Dýrafirði.
Núpur í Dýrafirði.
« 1 af 2 »

Sýning á verkum listahjónanna Gunnars Guðmundssonar og Guðmundu Jónu Jónsdóttur frá Hofi Dýrafirði verður opnuð á Núpi í Dýrafirði á sunnudaginn 18. júní 2017 kl. 14.  

Sýnt verður í einni af hinum einstöku skólastofum Núpsskóla og hefur því stofan fengið nafnið Gunnars- og Mundustofa.

Í tilefni opnunarinnar verður tilboð á sér dýrfirskum veitingum í veitingasalnum.  Vaffla með rjóma og rabbabarasultu úr sérmerktum rabbabara úr Skrúð og kaffi með því.

Gunnars- og Mundustofa verður opin í allt sumar á opnunartíma Núps.  Sýningin er styrkt af Menningarnefnd Ísafjarðarbæjar.

Í umsögn um sýninguna segir Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur og barnabarn þeirra hjóna:

,Hjónin Gunnar Guðmundsson (1898-1987) og Guðmunda Jóna Jónsdóttir (1905-1991) frá Hofi í Dýrafirði skildu eftir sig mikinn arf, jafnt í minningum um ástríkar og hlýjar manneskjur sem einstökum listaverkunum sem þau hófu að skapa á efri árum og hér getur að líta brot af.

Guðmunda bjó til myndverk úr skeljum, steinum og muldu grjóti sem hún límdi á rekavið, pappadiska, glerflöskur og krossvið.

Gunnar hóf sjötugur að mála með olíulitum á striga. Oft leynist í myndum hans huldufólk við nánari athugun: andlit í kletti eða álfur bak við stein.

Á heimili sínu á Þingeyri skópu þau einstakt ævintýraland sem engum gleymist sem þangað kom.“

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31