A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
21.06.2017 - 18:22 | bb.is,Björn Ingi Bjarnason,Hlaupahátíð 2016,Vestfirska forlagið

STRANDBLAKIÐ Á SÍNUM STAÐ

Strandblak verður á Dýrafjarðardögun en þeir eru 30. júní - 2. júlí 2017
Strandblak verður á Dýrafjarðardögun en þeir eru 30. júní - 2. júlí 2017
Það er áralöng hefð fyrir stigamóti í strandblaki á Þingeyri í tilefni Dýrafjarðardaga en þeir verða í ár 30. júní - 2. júlí. og í ár er engin undantekning.

Þetta mun vera í 12. skipti sem mótið er haldið á Þingeyri, en það er Íþróttafélagið Höfrungur sem stendur fyrir mótinu.

Þetta er þriðja stigamótið á árinu og munu  stigahæstu liðin keppa á Íslandsmótinu síðar í sumar. Keppt er í fullorðinsflokki, bæði kvenna og karla og að sögn Dýrleifar Hönnu Sigmundsdóttur mótsstjóra rennur skráningarfrestur út mánudaginn 26. júní.

Nánari upplýsingar má nálgast á 
Facebooksíðu mótsins.



« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30