A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
19.04.2017 - 06:34 | Stjórnarráðið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is,Vestfirska forlagið

SAMNINGAR VEGNA DÝRAFJARÐARGANGA UNDIRRITAÐIR FYRSTA SUMARDAG

Hrafnseyri við Arnarfjörð. Ljósm.: BIB
Hrafnseyri við Arnarfjörð. Ljósm.: BIB

Á morgun 20. apríl 2017, sumardaginn fyrsta,  undirrita Jón Gunnarsson samgönguráðherra og Hreinn Halldórsson forstjóri Vegagerðarinnar  samninga við aðalverktaka Dýrafjarðarganga á Hrafnseyri við Arnarfjörð.

Aðalverktakar eru Metrostav  A.S, frá Tékklandi og Íslenski verktakinn Suðurverk hf. Þessir verktakar hafa séð um framkvæmdir við Norðfjarðargöng sem verða opnuð í haust. Jafnframt verður skrifað undir samning við verkfræðistofuna Efla  sem hafa ásamt samstarfsaðilum tekið að sér eftirlit með verkinu.

Allir eru velkomnir að vera við athöfnina sem hefst klukkan 14.

Þar verða haldnar stuttar ræður og gestum síðan boðið að þiggja kaffiveitingar.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30