A A A
  • 1935 - Soffía Einarsdóttir
14.04.2015 - 06:50 | BIB,Verkalýðsfélag Vestfirðinga

Rafræn atkvæðagreiðsla hafin - tökum þátt !

« 1 af 2 »

Rafræn atkvæðagreiðsla 16 aðildarfélaga Starfsgreinasambandsins um heimild til verkfallsboðunar hófst kl. 08:00 í gærmorgun og mun hún standa til miðnættis þann 20. apríl 2015.
Um er að ræða verkfallsboðun vegna félagsmanna sem starfa eftir kjarasamningum við Samtök atvinnulífsins. Rúmlega 10.000 manns eru á kjörskrá og fá þeir í dag eða á næstu dögum send kjörgögn vegna atkvæðagreiðslunnar. Fólk er hvatt til að skoða gögnin vel og vandlega og hafa samband við skrifstofu SGS eða sitt stéttarfélag ef einhverjar spurningar vakna. Þá er rétt að benda á vefsvæði SGS sem inniheldur mikið magn gagnlegra upplýsinga um verkfallsaðgerðirnar.

Eins og áður sagði þá er um rafræna atkvæðagreiðslu að ræða. Lykilorðið sem fylgir með kjörgögnum veitir aðgang að kosningunni, sem fer fram hér. Atkvæðin eru ekki persónurekjanleg þannig að það er ekki hægt að óska eftir nýju lykilorði, ef það kynni að glatast.

Ef einhver telur sig eiga að vera á kjörskrá en fær ekki send kjörgögn þá getur viðkomandi kært sig inn á kjörskrá. Sá hinn sami þarf þá að hafa samband við stéttarfélagið sitt. Í framhaldinu er málið sent til kjörstjórnar sem mun taka afstöðu til þess.

SGS hvetur að sjálfsögðu alla kosningabæra félagsmenn til að taka þátt í atkvæðagreiðslunni og greiða atkvæði um verkfallsboðunina!

 

Verkalýðsfélag Vestfirðinga.

« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31