A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
31.07.2017 - 20:43 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Prik fyrir Vegagerðina: - Hlemmivegur frá Hrafnseyri að Dýrafjarðargöngum

Frá Arnarfirði séð í Hrafnseyrardal. Ljósm.: Mats Wibe Lund.
Frá Arnarfirði séð í Hrafnseyrardal. Ljósm.: Mats Wibe Lund.

Nú er aldeilis uppi annar óður! Það er eins og vegurinn frá Hrafnseyri að framkvæmdasvæði Dýrafjarðarganga á Rauðsstöðum og jafnvel inn í Mjólká, sé bara steyptur. Þetta er eins og hver önnur hraðbraut eða Autobahn eins og þeir segja í Þýskalandi.

Gárungarnir segja að þetta sé Búnaðarfélagi Auðkúluhrepps að þakka. Þegar aðalfundur félagsins var haldinn í Mjólkárvirkjun í apríl 2005, þótti við hæfi að bera harpað efni frá Grjóteyri utan Rauðsstaða í slitlag á veginum og alla leið upp á Hrafnseyrardal. Svo bara hefur sprautubíllinn sprautað sjó duglega á veginn í sumar og heflun lukkast vel og allt hvað heiti hefur.

Þetta umrædda vor var meira að segja sett malbik við sitt hvorn endann á einbreiðu brúnum á veginum, sem eru nokkrar. Þannig að nú lenda menn ekki í hinu skylduga hoppi við brýrnar eins og áður, eins og Ómar okkar Ragnarsson orðaði það svo skemmtilega forðum.

Bravó Vegagerð!



« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31