A A A
  • 2012 - Freyja Dís Hjaltadóttir
13.08.2016 - 07:23 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Opinbera heimsóknin til Flateyrar: - Spekingarnir þrír skoða lengstu drossíu á Vestfjörðum!

Spurningin er náttúrlega hvaða tegund og árgerð þetta er.
Spurningin er náttúrlega hvaða tegund og árgerð þetta er.

Þeir ráku upp stór augu bræðurnir þrír er þeir sáu löngu drossíuna á Flateyri.
Hún er í eigu Úlfars Önundarsonar verktaka og skipasmiðs með meiru.

Ekki er nokkur vafi á að þetta er lengsti eðalvagn á Vestfjörðum og þó víðar væri leitað! Í þessum langa djommara hljóta að vera tvö herbergi og eldhús!

Þeir félagar höfðu við orð að þeir þyrftu að koma aftur til Flateyrar og fá Úlfar til að skutla sér um Önundarfjörð og jafnvel alla leið til Ísafjarðar. Það hlýtur bara að vera gaman. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30