A A A

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til nýsköpunar- og samfélagsverkefna á Þingeyri og við Dýrafjörð úr sjóði sem verkefnisstjórn veitir úr í umboði Byggðastofnunar vegna ársins 2019.

Umsóknum skal skilað á tölvutæku formi á þar til gerðu eyðublaði sem finna má á Þingeyrarvefnum (Umsóknareyðublað hér), fésbókarsíðu Blábankans og heimasíðu Vestfjarðarstofu.

Umsóknarfrestur er til og með 15. apríl 2019. Allir sem búa yfir hugmyndum að frumkvæðis- og/eða samfélagverkefnum í samfélaginu við Dýrafjörð eru hvattir til að sækja um. 

Nánari upplýsingar veitir verkefnisstjóri Agnes Arnardóttir, netfang: agnes@vestfirdir.is 

Styrkhæf verkefni eru rannsóknar-, þróunar- og nýsköpunarverkefni þar sem markvisst er stefnt að markaðssetningu nýrrar eða endurbættrar vöru eða þjónustu. Einnig er heimilt að styrkja stofnfjárfestingu í hvers konar verkefnum að því gefnu að þau raski ekki samkeppni á viðkomandi þjónustusóknarsvæði. Enn fremur samfélagseflandi verkefni önnur en þau sem teljast til lögbundinna og/eða hefðbundinna verkefna ríkis eða sveitarfélaga. 

Nýútkomna skýrslu með framtíðarsýn og framkvæmdaáætlun fyrir árið 2019 má finna á vef Byggðastofnunar www.byggdastofnun.is ásamt nánari upplýsingum um úthlutunarreglur úr sjóðnum.

 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30