A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
04.08.2016 - 07:21 | Vestfirska forlagið,Reykhólavefurinn

Ólafsdalshátíðin verður 6. ágúst 2016

Í Ólafsdal.
Í Ólafsdal.

Að þessu sinni verður níunda Ólafsdalshátíðin haldin 6. ágúst 2016, í annað skipti á laugardegi. Tókst mjög vel til með það í fyrra. Er það von Ólafsdalsfélagsins að með því fjölgi þeim gestum á hátíðinni sem kjósa að verja helginni í Dölum, Reykhólasveit eða nágrenni. Aðaldagskráin verður kl. 13-17 og mjög fjölbreytt eins og áður.

 

M.a. mun Lína langsokkur (Ágústa Eva Erlendsdóttir) koma og skemmta börnum á aldrinum 0-99 ára. Þá mætir Drengjakór íslenska lýðveldisins með nýtt prógramm og Guðrún Tryggvadóttir kynnir sýningu sína Dalablóð. Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti verður til sölu, glæsilegt Ólafsdalshappdrætti og vandaður handverks- og matarmarkaður.
Aðalræðumaður verður Þorsteinn Sæmundsson, alþingismaður og fyrrverandi kaupfélagsstjóri Kaupfélags Saurbæinga.

Ókeypis er inn á hátíðina að vanda. Allir velkomnir! Opið er í Ólafsdal alla daga kl. 12-17 fram til 14. ágúst. Kaffi, vöfflur, Erpsstaðaís o.fl. í boði.

 

Lífrænt vottað Ólafsdalsgrænmeti

 

Nú eru fjögur ár síðan Ólafsdalsgrænmetið fékk lífræna vottun frá vottunarstofunni Túni. Í vor fór vaskur hópur um 20 karla, kvenna og barna í Ólafsdal og setti niður í garðinn. Spretta hefur verið sem aldrei fyrr vegna góðviðris. Þar er meðal annars ræktað grænkál, blómkál, hnúðkál, rauðkál, brokkólí, rófur og hnúðkál sem fæst á markaðinum í Ólafsdal.

 

Umsjónarmenn í Ólafsdal 2016

 

Hjónin Elfa Stefánsdóttir (f. 1962) og Haraldur Baldursson (f. 1961) verða áfram staðarhaldarar fyrir Ólafsdalsfélagið í Ólafsdal í sumar, en þau koma úr Hafnarfirði. Elfa var m.a. forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Öldunnar en er nú útskrifuð sem gönguleiðsögumaður frá Leiðsöguskólanum í Kópavogi. Haraldur er tæknifræðingur. Elfa og Haraldur vonast til að sjá þig og þína í Ólafsdal sem fyrst. Hafa má samband í síma 821 9931 og á elfa@hbt.is.

 

400 milljóna króna uppbygging framundan

 

Ólafsdalsfélagið var stofnað í Ólafsdal í júní 2007. Félagið hefur fengið miklu áorkað með stuðningi fjölmargra aðila, auk mikillar sjálfboðavinnu félagsmanna. Framundan eru miklar framkvæmdir Minjaverndar við endurbyggingu flestra húsa sem voru í Ólafsdal á blómatíma Ólafsdalsskólans í kringum 1900. Á síðasta sumri var gengið frá samkomulagi milli fjármálaráðuneytisins, Ólafsdalsfélagins og Minjaverndar um þá endurreisn. Alls munu endurbyggðar 8-9 byggingar sem voru í Ólafsdal.

 

Þar var fastmælum bundið að sögu staðarins og menningarminjum verði áfram gerð góð og aukin skil og mun Ólafsdalsfélagið gegna þar lykilhlutverki. Jafnframt verður frjálst aðgengi almennings tryggt, enda var Ólafsdalsskólinn þjóðskóli í þeim skilningi að þangað komu nemendur hvaðanæva af landinu og áhrif hans voru mikil á landsvísu.

 

Þær hugsjónir og trú á land og lýð sem endurspegluðust í allri starfsemi Ólafsdalsskólans eiga nú mikið erindi við íslensku þjóðina, segir Rögnvaldur Guðmundsson, formaður Ólafsdalsfélagsins. Er stefnt að því að endurreisn Ólafsdals verði lokið fyrir 140 ára afmæli skólans árið 2020. Áætlaður kostnaður er um 400 milljónir króna.

 

Landmótun ehf. vinnur nú að deiliskipulagi í Ólafsdal fyrir Minjavernd vegna þeirrar uppbyggingar sem framundan er á húsunum sem voru í Ólafsdal um 1900 og annarrar nýtingar. Þá er hafin fornleifaskráning á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði í Ólafsdal. Birna Lárusdóttir fornleifafræðingur hjá Fornleifastofnun Íslands hefur umsjón með skráningunni. Munu framkvæmdir fara í fullan gang á næsta ári.

 

Þá er væntanleg skýrsla um ræktunarminjar í Ólafsdal sem unnin er af prófessor Bjarna Guðmundssyni og Ragnhildi Sigurðardóttur umhverfisfræðingi. Þá er nú haldið áfram með vinnu við fræðslustíg og kortlagningu gönguleiða út frá Ólafsdal o.fl. Til að tryggja heilsársstarfsemi í Ólafsdal og nýta þær fjárfestingar sem lagðar verða í staðinn er síðan mikilvægt að bæta veginn inn Ólafsdalshlíðina samhliða uppbyggingunni, um 6 km vegalengd.

 

Félagar í Ólafsdalsfélaginu er nú á fjórða hundrað, enda afar spennandi að eiga hlutdeild ævintýrinu sem framundan er, segir Rögnvaldur Guðmundsson, formaður félagsins. Þeir sem eru áhugasamir um að ganga í félagið geta haft samband við Rögnvald í netfanginu rognvaldur@rrf.is eða í síma 693 2915.

 

Ný heimasíða Ólafsdalsfélagsins

 

Facebooksíða Ólafsdalsfélagsins

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30