A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
11.12.2017 - 09:45 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson,Björn Ingi Bjarnason

Ný bók frá Vestfirska forlaginu

Út er komin bókin Vestfirðingar til sjós og lands - Gaman og alvara fyrir vestan. Hallgrímur Sveinsson tók saman.

Bókin hefur að geyma ýmsar frásagnir af Vestfirðingum, lífs og liðnum. Tilgangurinn: Að vekja athygli og áhuga á Vestfjörðum og innbyggjurum þeirra fyrr og síðar. Til þess var Vestfirska forlagið einmitt stofnað. Kannski bara af hugsjón. En ekki til að græða peninga.

   Margir telja að Vestfirðingar séu að sumu leyti svolítið öðruvísi en aðrir landsmenn. Má vel merkja það í þessari bók. Nægir þar að nefna kraft þeirra, áræði og ósérhlífni að ógleymdri hjálpseminni. Manngildið frekar metið í dugnaði en peningum. Og gamansemin er þeirra lífselexír. Svo segja sumir gárungar að þegar Vestfirðingar eru hættir að geta rifið kjaft, séu þeir endanlega búnir að vera. En það er nú kannski ofsagt! 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30