A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
09.10.2015 - 23:29 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Ný bók að vestan: - Vestfirðingar í dagsins önn

Um helgina fer í dreifingu hjá Vestfirska forlaginu bókin Vestfirðingar í dagsins önn, gamansögur úr daglega lífinu á Vestfjörðum. Hallgrímur Sveinsson og Bjarni G. Einarsson tóku saman.

   Þessar gamansögur eru hluti af arfi kynslóðanna á Vestfjörðum. Þær eru valdar úr miklum sagnabálki þjóð-og gamansagna Vestfirðinga. Margar þeirra hafa aldrei verið prentaðar áður.

   Um sannleiksgildið má segja hið fornkveðna: Ef sagan er góð þá er hún sönn!

„Gamanmál eru nauðsynleg, en að baki þeim býr alvara lífs og dauða. Það vitum við sjómennirnir ef til vill betur en aðrir.“ Svo mælti hinn landsþekkti skipherra, Eiríkur Kristófersson, sem var Vestfirðingur í húð og hár. 

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30