A A A
  • 1948 - Hólmgeir Pálmason
  • 1954 - Þórhallur Arason
Meðal annars verður hægt að læra útsaum. Mynd: heimilisidnadur.is
Meðal annars verður hægt að læra útsaum. Mynd: heimilisidnadur.is
Heimilisiðnaðarfélag Íslands mun, í samstarfi við Þjóðbúningafélag Vestfjarða, halda Norrænar handverkssumarbúðir á Þingeyri dagana 3.-9. Júlí 2011. Þetta eru fjölskyldusumarbúðir þar sem boðið er upp á námskeið fyrir alla aldurshópa. Dagskráin er ansi viðamikil en meðal annars verður hægt að sækja námskeið í jurtalitun, vattasaum, útskurði, eldsmíði og íslenskri matargerð, svo fátt eitt sé nefnt. Á milli námskeiða verður meðal annars boðið upp á fyrirlestra, sýningar, dagsferð um Arnarfjörð og kvöldvökur. Þátttakendur koma frá öllum Norðurlöndum og fer kennsla fram á skandinavísku. Á heimasíðu Heimilisiðnaðarfélags Íslands má sjá nánari upplýsingar um handverkssumarbúðirnar.
« Janúar »
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31