A A A
  • 1927 - Rannveig Guðjónsdóttir
  • 1970 - RAIVO SILDOJA
Tjörn á Þingeyri.
Tjörn á Þingeyri.
« 1 af 2 »

Nú er læknir farinn að koma tvisvar í viku til Þingeyrar frá Ísafirði einn og hálfan tíma í senn. Þetta eru ánægjuleg og óvænt tíðindi, en áður komu læknar einu sinni í viku á staðinn. Auðvitað er þetta mjög skynsamlegt og þjóðhagslega verulega hagkvæmt, því margir þurfa að vitja læknis öðru hvoru. Og sumir þurfa alltaf að vera að fara í blóðpróf. Það er náttúrlega betra að einn læknir komi til Þingeyrar með aðstoðarkonu, heldur en 10 -20 manns fari akandi til Ísafjarðar þegar svo ber undir. Minna stress fyrir báða aðila segja allir.

   Landsbankinn ætti að taka heilbrigðisþjónustuna til fyrirmyndar og hafa opið tvisvar í viku á Þingeyri. Þetta er óttalegt stress að hafa opið bara einu sinni í viku í einn klukkutíma. Það er alveg búið að sannprófa það að margir þurfa nauðsynlega á bankaþjónustu að halda í Dýrafirði, ekki síður en læknisþjónustu. Þetta er nákvæmlega sama lögmálið: Þjóðhagslega og alla vega hagkvæmara að tveir komi til Þingeyrar til að veita einhverja peningaþjónustu heldur en 30-40 manns spóli á Ísafjörð til slíkra hluta. Niður með stressið! Upp með skynsamlega bankaþjónustu tvisvar í viku!

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31