A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
24.04.2016 - 06:27 | Vestfirska forlagið,Hallgrímur Sveinsson

Menningin fyrir vestan: - Hvað var verið að lesa í sundlauginni á Þingeyri í vetur?

Söngkonan vinsæla Eivör Pálsdóttir frænka okkar. Þess er að minnast, að hún og aðrir Færeyingar, lánuðu okkur Íslendingum óumbeðnir hátt á sjöunda milljarð í beinhörðum gjaldeyri, þegar við vorum með betlistaf í hendi eftir „hið svokallaða hrun.“ Áttum minna en ekkert  til að kaupa lyf, eldsneyti og aðrar nauðsynjavörur erlendis.
Söngkonan vinsæla Eivör Pálsdóttir frænka okkar. Þess er að minnast, að hún og aðrir Færeyingar, lánuðu okkur Íslendingum óumbeðnir hátt á sjöunda milljarð í beinhörðum gjaldeyri, þegar við vorum með betlistaf í hendi eftir „hið svokallaða hrun.“ Áttum minna en ekkert til að kaupa lyf, eldsneyti og aðrar nauðsynjavörur erlendis.
« 1 af 2 »

   Í sundlauginni á Þingeyri hefur á liðnum árum ekki einungis verið hugsað um líkamlegu hliðina. Hin andlega hliðin kemur þar einnig við sögu. Í all mörg ár hefur nefnilega verið lesið þar innan stokks upp úr vestfirskum bókmenntum og jafnvel heimsbókmenntum. Svo þarf auðvitað ekki að nefna spekingana í heita pottinum og við kaffiborðið hjá henni Þorbjörgu Gunnarsdóttur, sem stjórnar öllu til sjós og lands í íþróttamiðstöðinni. Þar eru nefnilega innanlandsmálin og  heimsmálin krufin til mergjar og stundum bara hreinlega leyst!

   Og svona til að monta okkur svolítið er hér upptalning á nokkrum verkum sem lesið hefur verið úr í vetur:

Eivör og færeysk tónlist eftir Jens Guðmundsson.

Ævisaga Vigdísar Finnbogadóttur eftir Pál Valsson

Útlaginn eftir Jón Gnarr

Fyrir miðjum firði Æviþættir Jóns Hjartarsonar  fræðslustjóra.

Svalvogavegur Kafli úr lífsbók Elísar Kjaran.

Vestfirskar konur í blíðu og stríðu eftir Finnboga Hermannsson.

Lífsins dómínó  Öðruvísi ævisaga Skúla Halldórssonar eftir Örnólf Árnason.

Ýmsir söguþættir úr Mýrahreppi eftir Valdimar Gíslason.

Frá Bjargtöngum að Djúpi Ýmsir þættir.

Mannlíf og saga fyrir vestan Ýmsar frásagnir.

Heilagur sannleikur eftir Flosa Ólafsson.

Ævisaga Ellýjar Vilhjálms eftir Margréti Blöndal.

Bryndís Lífssaga Bryndísar Schram eftir Ólínu Þorvarðardóttur.

Og svo auðvitað ótal gamansögur af Vestfirðingum lífs og liðnum.

Tekið skal fram að þessi listi er alls ekki tæmandi.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30