26.10.2018 - 11:51 |
Mega-Ekspres í Blábankanum
Ekki er þverfótað fyrir viðburðum í firðinum þessa dagana. Á mánudag mun danski stuð dúettinn Mega-Ekspress vera með feikna hressa dagskrá í Blábankanum. Klukkan 16:00 munu þau halda tónlistarvinnusmiðju fyrir fólk á öllum aldri en þar verður farið í alls konar spuna og hljóðsamsetningar. Strax í framhaldinu, klukkan 18:00, halda þau svo tradikómíska tónleika fyrir bæjarbúa. Aðgangur er auðvitað ókeypis og bæjarbúar og nærsveitungar eru hvattir til að fjölmenna.
Á Soundcloud síðu Mega-Ekspres má hlusta tóndæmi: https://soundcloud.com/mega-ekspres