A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
19.10.2009 - 15:59 | SFÞ

Lagning háspennukapla á Þingeyri

Fleiri myndir frá framkvæmdum eru í myndaalbúminu.
Fleiri myndir frá framkvæmdum eru í myndaalbúminu.
Undanfarnar vikur hefur Orkubú Vestfjarða verið með menn á sínum snærum við vinnu hér á þingeyri, bæði verktaka og menn frá eigin fyrirtæki við lagningu nýs háspennustrengs. Ástæða þessa er að strengurinn sem fyrir er er um það bil 50 ára gamall og því mikil hætta á bilunum, sem hefur reyndar gerst. Lengd þessa háspennukapals sem lagður er, er 6 km. langur, en sú vegalend sem grafa þarf er 3 km. Strengurinn er því lagður tvöfaldur í skurðina og þannig myndar hann tvöfalt öryggi. Hann er lagður frá aðveitustöð á Skeiði að flest öllum spennustöðvum á Þingeyri. Hér er því um milljónaframkvæmdir að ræða.

Henry Bæringsson, sem er verkstjóri Orkubús Vestfjarða á svæði 1, segir verkið hafa gengið vonum framar og eru menn mjög ánægðir með verktakana hjá Brautinni sf, sem sér um uppmokstur á skurðum og frágang eftir lagningu strengsins. Einnig hefur veðrið verið óvenju gott veður nú í haust og allir aðrir sem koma að verkinu, bæði verktakar og aðrir starfsmenn unnið sem einn maður. Er lagningu strengs að ljúka þessa dagana og vonir að hægt verði að steypa aftur þær gangstéttir sem rifnar hafa verið upp.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30