A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
14.05.2009 - 23:55 | bb.is

Knattspyrnuskóli Íslands á Þingeyri

Þingeyri
Þingeyri
Knattspyrnuskóli Íslands verður haldinn á Þingeyri við Dýrafjörð dagana 8.-12. júlí. Skólinn er ætlaður öllum knattspyrnuiðkendum, strákum og stelpu, á aldrinum 11-17 ára, þ.e. fædd 1992-1998. Markmiðið er að bjóða knattspyrnuiðkendum á Vestfjörðum upp á úrvals knattspyrnuskóla á svæðinu. Í skólanum er kennd tækni, taktík og gildi rétts hugarfars. Skólinn verður settur í Grunnskólanum á Þingeyri kl. 14 miðvikudaginn 8. júlí. Kennslan er í höndum reyndra þjálfara og íþróttakennara en skólastjóri er Bjarni Stefán Konráðsson, íþróttafræðingur og knattspyrnuþjálfari. Knattspyrnuskóli Íslands hafi verið starfræktur í meira en áratug á Sauðárkróki við góðan orðstír.

Nánari upplýsingar og skráning er hjá Bjarna Stefáni í síma 695-4504 og bjarnist@mr.is, Sigmundi í síma 863-4235 og sigmfth@simnet.is.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30