A A A
  • 1979 - Ausra Kamarauskaite
Bastían bæjarfógeti.
Bastían bæjarfógeti.
  1. Lausafregnir segja að Bastían bæjarfógeti sé á leið að yfirtaka stjórn Þingeyrarbæjar. Honum þykir hægt ganga.
  2. Í fyrradag lagðist skip að bryggju á Þingeyri. 500-600 tonna barkur. Þetta er ekki ekkifrétt!
  3. Það er ekkert að frétta úr blokkinni
  4. Nú er búið að gefa út ordrur upp á göngur og réttir næstu tvö haust í Ísafjarðarbæ. Ekki seinna vænna. Eins og margir vita, voru Stóri-Grímur yfirsmali og Siggji Friggji, töskuberi hans, reknir úr þeim djobbum. En þeir hafa eitt tromp. Það eru Viagra karamellurnar. Þær verða kannski ekki alveg á lausu í haust.
  5. Mangi er hættur að taka í nefið segja gárungarnir. En ætli þetta sé ekki bara hraðfrétt?
  6. Valdimar, sá góði drengur á Mýrum, er mættur í spekingaklúbbinn í lauginni á Þingeyri. Er búinn að vera 52 nætur samfleytt á vakt, grár fyrir járnum, ásamt fótgönguliðum sínum í varpinu. Það er passinn á hverju vori. Það stangar ekki hart í dag!
  7. Fyrsta málið sem tekið var fyrir eftir að Mýrabóndinn var mættur, var auðvitað hin gægvænlega launahækkun toppanna í Stjórnarráðinu. Þessir menn bera mikla ábyrgð á herðum sér. Það gera skúringakonurnar einnig. En spyrja má: Hver ber ábyrgð á þeim sem lepja dauðann úr skel í þessu þjóðfélagi?
  8. Vonandi fáum við fréttaskeyti úr Hafnarfirði um þetta mál frá fréttaritara vorum þar. Það væri fróðlegt að heyra hvað Gaflarar hafa nú að segja. 
  9. Hjónin í Hólum eru komin heim úr Reykjavíkinni. Nú eru rúllurnar orðnar bleikar á þeim bæ. Næst verða þær sennilega bláar!
  10. Stjáni í Miðbæ fór úteftir í gær. Það er allt undir kontról á útsveitinni. Í bakaleiðinni kom hann við í Hólum og fékk sér kaffi. Kleinurnar voru auðvitað nýsteiktar! 
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30