A A A
  • 1902 - fæddist Halldór Laxness
  • 1950 - Ólafía Sigurjónsdóttir
  • 1965 - Kristbjörg Bjarnadóttir
  • 1989 - Harpa Sjöfn Friðfinnsdóttir
  • 1990 - Snorri Karl Birgisson
  • 1998 - Magnús Freyr Jónasson
17.11.2009 - 11:57 | BB.is

Karlakórinn Ernir með jólatónleika

Karlakórinn Ernir býður Vestfirðingum á jólatónleika í byrjun desember.
Karlakórinn Ernir býður Vestfirðingum á jólatónleika í byrjun desember.
Karlakórinn Ernir heldur sína árlegu jólatónleika í byrjun desember. Ókeypis er á tónleikana að vanda og segir Sigmundur Þórðarson, ritari kórsins, að Ernir líti á tónleikana sem jólagjöf til samfélagsins. Guðrún Jónsdóttir, sópransöngkona, syngur einsöng með kórnum að þessu sinni. Stjórnandi kórsins er Beata Joó og undirleikari Margrét Gunnarsdóttir. Fyrstu tónleikarnir verða í Félagsheimilinu á Þingeyri miðvikudaginn 2. desember, þann 3. desember syngur kórinn í Safnaðarheimilinu í Bolungarvík og föstudaginn 4. desember verða tónleikar í Ísafjarðarkirkju. Allir tónleikarnir hefjast klukkan 20.00.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30