A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
10.04.2017 - 20:43 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason,bb.is

KYNNINGARFUNDUR BLÁBANKANS Á ÞINGEYRI

Blábankinn verður í húsi Landsbankans á Þingeyri.
Blábankinn verður í húsi Landsbankans á Þingeyri.

Þann 16. mars gerðu Ísafjarðarbær, Nýsköpunarmiðstöð og Landsbankinn, auk fleiri einkaaðila, með sér samkomulag um að koma upp samvinnurými í útibúi Landsbankans á Þingeyri sem kallast Blábankinn.

Þetta rými mun verða vettvangur til að veita og þróa þjónustu fyrir íbúa svæðisins, ásamt því að gefa íbúum og gestum tækifæri til að hittast, læra, uppgötva, skapa og vinna saman. Stofnaðilar Blábankans bjóða nú til kynningar á þessu nýstárlega og spennandi verkefni.

Kynningin fer fram í Félagsheimilinu á Þingeyri á morgun þriðjudag, 11. apríl 2017, kl. 17.30 og verður að kynningu lokinni rölt yfir í Blábankann.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30