KÚLUVARP Emils R. Hjartarsonar
Ég var aldrei góður í kúluvarpi en háði þó fleiri keppnir í því sporti en öllum öðrum íþróttagreinum til samans.
Heima á Flateyri keppti ég dögum saman við Gumb Maríasar frammi á Grund og tapaði alltaf, enda nokkuð yngri.
Vorið1953 kom Flosi Ólafsson til Akureyrar til að taka stúdentspróf í MA,hafði verið vikið úr skóla,en ekki hægt að meina honum að taka próf, ,hafði dvalið í útlegð vestur á Snæfellsnesi og búið sig undir prófið hjá séra Þorgrími á Staðarstað.
Ekki elskuðu Akureyringar Flosa að ráði. Hann hafði semsé kveðið vísu um Akureyri þegar hann kvaddi einhvern tíma .
Frá Akureyri er um það bil
ekki neins að sakna
Þó er fallegt þangað til
þorpsbúarnir vakna
Það lá kúla við heimavistarvegginn og er ekki að orðlengja að Flosi skoraði á mig í kúluvarpskeppni, ekki aðeins einu sinni heldur í hverjum hádegismatartíma á þriðju viku. Ég var orðinn hundleiður á þessu--en-- hvað gerir maður ekki fyrir Flosa.
Þegar ég fór að venja komur mínar á Melavöllinn á námsárum mínum í Reykjavík var þar oft Valbjörn Þorláksson, tugþrautar--og stangarstökkskappi. Kúluvarp var lakasta grein hans í tugþrautinni og er ekki að sökum að spyrja hann gerði mig að æfingarþræl,-- endalaus kúluvarpkeppni við "Sólbjörn" í æfingaskyni fyrir hann og valt á ýmsu með úrslit.
Að lokum. Hæst ber kúluvarps "keppni" á Núpi og var keppinauturinn enginn annar en "Strandamaðurinn sterki" Hreinn Halldórsson sem var gestur á Héraðsmóti ásamt fleiri köppum "að sunnan"
Ég man að Hreinn vann--en-- það mátti skrá árangur okkar með sömu tölustöfunum, munurinn var ekki meiri. Hann kastaði 21 metra ég 12 metra ( sentimetrum sleppt)
Ég hef ofnæmi fyrir kúluvarpi.
Af Facebook-síðu Emils R. Hjartarsonar.