A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
16.06.2016 - 15:53 | Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Í tilefni sláttarbyrjunar í Mýrahreppi: - Það er nú betra að fljóti yfir ljáinn!

þórarinn Sighvatsson á Höfða.
þórarinn Sighvatsson á Höfða.

Nú hefur borist út um heimsbyggðina að Ómar á Ketilseyri sé búinn að slá á jörð sinni Grænanesi í Mýrahreppi. Var það mikil og góð slægja hjá kalli. Í tilefni af því er rétt að rifja hér upp eina góða af Þórarni bónda á Höfða. Hann var snillingur sagði Valdimar á Mýrum. Við tökum sterklega undir það.

 

“Þórarinn Sighvatsson bóndi á Höfða í Dýrafirði, einn af afkomendum Sighvats Grímssonar Borgfirðings, var einhver harðduglegasti bóndi á Vestfjörðum og rak stórbú á eignarjörð sinni í áratugi af mikilli hagsýni. Þórarinn var með orðheppnustu mönnum og er löngu orðinn þjóðsagnapersóna hér vestra fyrir óborganleg tilsvör sín í önn dagsins.

            Þórarinn lagði alltaf ofurkapp á að byrja snemma að slá og var löngum fyrstur manna að hefja það verk. Hann bar tilbúinn áburð á tún sín um leið og fór að grænka, „kastaði áburðinum beint í ginið á gróandanum“ eins og Halldór Pálsson búnaðarmálastjóri ráðlagði bændum að gera á sínum tíma.

            Nú bar það til eitt sumar snemma, að út barst um sveitir að þeir á Mýrum væru byrjaðir að slá. Maður nokkur færði Höfðabóndanum fréttina og kvað þannig að orði, að nú hefðu þeir Mýramenn verið á undan honum að hefja heyskap. Þórarinn varð fár við, en sagði þó að bragði:

            Þeir verða heylausir fyrir því. Það er nú betra að fljóti yfir ljáinn.”

(Sögn Mýrhreppings)

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30