Hvernig í ósköpunum stendur á því?
Hvers vegna ætli sé ekki löngu búið að setja á stofn heilsustofnun í Reykjanesi í Djúpi? Þar er öll aðstaða sem hrópar á mann: Nóg heitt vatn, nóg af þessum fínu byggingum og pottþéttar samgöngur allan ársins hring.
Séra Baldur vakti á þessu athygli fyrir áratugum og fleiri góðir menn. Þetta vita allir menn sagði klerkur þegar hann var að lýsa hinni fínu aðstöðu í Reykjanesi fyrir heilsustofnun. En það hefur ekki dugað til. Sundlaug, enginn vandi að útbúa leirböð, íþróttasalur og allt hvað heiti hefur. Hvað vilja menn meira?
„Dvöl á Heilsustofnun á að vera einstök og lífseflandi reynsla sem opnar gestum okkar nýja sýn á lífið. Gerir þeim mögulegt að sigrast á vandamálum sínum og leyfir þeim að gleðjast og njóta samveru en einnig að nálgast sinn innri mann.“
Svo segir Haraldur Erlendsson yfirlæknir og forstjóri Heilsustofnunar NLFÍ í Hveragerði í 60 ára afmælisblaði þeirra.
Hallghrímur Sveinsson.