A A A
21.03.2010 - 23:49 | JÓH

Húsfyllir á þjóðháttakynningu

Æðarbændurnir: Sigurður Eiríksson Norðurkoti, Valdimar Gíslason Mýrum og Páll og Sigríður Hanna Norðurkoti Sandgerði. Mynd: ÓSA af vef Víkurfrétta
Æðarbændurnir: Sigurður Eiríksson Norðurkoti, Valdimar Gíslason Mýrum og Páll og Sigríður Hanna Norðurkoti Sandgerði. Mynd: ÓSA af vef Víkurfrétta
Húsfyllir var á þjóðháttakynningu um æðarbúskap og refaveiðar. Valdimar Gíslason æðarbóndi á Mýrum í Dýrafirði lýsti þróun véla við hreinsun dúns og hvernig búskapurinn hefði þróast frá 1936 fram til dagsins í dag. Hann sagði jafnframt skemmtilegar sögur af viðureign manna við refi. Sigríður Hanna og faðir hennar Sigurður Eiríksson sögðu frá búskapnum í Norðurkoti í Sandgerði og viðureign þeirra við að halda köttum frá æðarvarpinu og síðar hvernig þau nýttu yrðlinga til að halda mávi í skefjum.


Ómar Smári Ármannsson göngugarpur sýndi myndir og lýsti hlöðnum refagildrum sem má sjá víða á Reykjanesskaga sjá - http://www.ferlir.is/?id=10912

Þjóðháttakynningin var mjög fróðleg. Upp kom hugmynd um að stofnað yrði félag um æðarvarp á Suðurnesjum.

 

Frá þessu er sagt á vef Víkurfrétta.

« Desember »
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31