A A A
  • 1926 - Jökull Sigtryggsson
  • 1946 - Katrín Eiríksdóttir
  • 1979 - Sólveig Eirný Sveinsdóttir
24.05.2016 - 08:11 | Vestfirska forlagið,bb.is

Hótel Sandafell á Þingeyri stækkar

Hótel Sandafell á Þingeyri stækkar.
Hótel Sandafell á Þingeyri stækkar.
« 1 af 2 »
Ráðist hefur verið í endurbætur og stækkun á Hótel Sandafelli á Þingeyri enda búist við mikilli fjölgun ferðamanna. Sjö tveggja til þriggja manna herbergi hafa nú verið útbúin til viðbótar við þessi fjórtán sem fyrir voru. Pálína Færseth hótelstjóri á Hótel Sandafelli segir að bókunarstaða fyrir sumar sé góð enda hafi „Trip Advisor“ einkunn hótelsins farið úr 6,1 upp í 8,1 á einu ári. Veitingasala er opin á hótelinu í sumar, frá klukkan 18:00 – 21:00 og mælir Pálína sérstaklega með heimbakaða rúgbrauðinu og spriklandi ferskum silungi og þorski. 

Búið er að manna hótelið í sumar en fimm starfsmenn verða í fullu starfi en á álagstímum verða fleiri kallaðir til verka.
« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30