A A A
  • 1981 - Berglind Hrönn Hlynsdóttir
17.07.2016 - 21:06 | ruv.is,Vestfirska forlagið

Hlaupahátíð 2016 lokið með hlaupi um Vesturgötu

Frá Vesturgötuhlaupinu. Ljósmynd: Halla Ólafsdóttir.
Frá Vesturgötuhlaupinu. Ljósmynd: Halla Ólafsdóttir.
Fjöldi fólks hljóp í dag Vesturgötu á síðasta degi Hlaupahátíðar á Vestfjörðum. Þetta var í ellefta sinn sem keppt var í hlaupi um Vesturgötu, sem er þekktur ýtuvegur fyrir skagann á milli Arnarfjarðar og Dýrafjarðar, oft kenndur við Svalvoga.
 

26 manns hlupu 45 kílómetra „tvöfalda Vesturgötu,“ þá var 81 einn sem lauk 24 kílómetra Vesturgötu og 26 luku keppni í 10 kílómetra „hálfri“ Vesturgötu.

Fyrstur í mark í tvöfaldri Vesturgötu, leið sem liggur úr Dýrafirði yfir í Arnarfjörð yfir Álftamýrarheiði þar sem hæsti hluti hennar er í 544 metra hæð, var Kári Steinn Karlsson ólympíufari, á 2 klukkustundum og 54 mínútum. Annar var Þorbergur Jónsson, utanvegahlaupari með meiru, á 2 klukkustundum og 58 mínútum.

Í kvennaflokki sigraði Sonja Sif Sigurðardóttir á 4 klukkustundum og 35 mínútum. Í Vesturgötu var fyrstur 17 ára Mathew Walker á einni klukkustund og 41 mínútu og fyrst kvenna var Rannveig Oddsdóttir á einni klukkustund og 44 mínútum. Heildarúrslit má finna á  timataka.net.

Vesturgatan er ekki þjóðvegur heldur einstaklingsframtak Elísar Kjaran Friðfinnssonar, ýtustjóra, sem ruddi veginn til að tengja Lokinhamradal vil þjóðvegi landsins, fyrst í Dýrafjörð og svo í Arnarfjörð. Vegurinn er vinsæll meðal ferðamanna. Hann er mjög dramatískur á köflum með yfirslútandi bergi og bröttum hlíðum. 

Blíðaskaparveður var á hlaupaleiðinni í dag og hlaupið gekk áfallalaust. 


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30