A A A
  • 2001 - Monika Janina Kristjánsdóttir
21.12.2017 - 20:32 | Björn Ingi Bjarnason,Hallgrímur Sveinsson,Vestfirska forlagið

Hestamennska í skammdeginu

Miðflokkurinn, með hestinn í fararbroddi, er nú á fullu að undirbúa sveitarstjórnarkosningar í vor, eins og bb.is skýrir frá. Af því tilefni er rétt að rifja upp eina söguna í 100 Vestfirskar gamansögur, Rauða kverinu. Þar segir á launfyndinn hátt frá hestamennsku framsóknarmanna í bæjarstjórnarmálum í Ísafjarðarbæ forðum. Íslenski hesturinn kemur sífellt  á óvart.

Sigurður Sveinsson frá Góustöðum í Skutulsfirði, Siggi Sveins, var í meira en hálfa öld einn helsti burðarás Framsóknarflokksins á Ísafirði. Framsóknarflokkurinn átti um þrjátíu ára skeið einn fulltrúa í bæjarstjórninni og oft stóð tæpt með hann.

Fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 1998 spurði Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður á Ísafirði Sigga, sem var bjartsýnismaður í pólitík, hvernig hann teldi að Maddömunni gengi núna í kosningunum. Siggi svarar strax að þeir muni fá einn mann kjörinn.

Efasemdar- og undrunarsvipur kom þá á sýsla og Siggi bætti við:

Okkur gengur alltaf vel og fáum alltaf einn mann kjörinn, á hverju sem gengur.

Svo fannst Sigga að sýsli efaðist enn og bætti við:

Við gætum sett hest í fyrsta sætið og fengið hann kosinn.“



« Október »
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31