A A A
  • 1949 - Guðberg Kristján Gunnarsson
  • 1962 - Unnur Cornette Bjarnadóttir
Fyrsta embættisverg Vigdísar Finnbogadóttur sem forseti var á Hrafnseyri við Arnarfjörð 3. ágúst 1980. Ljósm.: BIB
Fyrsta embættisverg Vigdísar Finnbogadóttur sem forseti var á Hrafnseyri við Arnarfjörð 3. ágúst 1980. Ljósm.: BIB
« 1 af 5 »
Fyrirhugað er að halda upp á þau tímamót um helgina að 35 ár eru frá því Vigdís Finnbogadóttir var kjörin forseti Íslands, en Vigdís er jafnframt fyrsta konan í heiminum til að verða þjóðkjörinn forseti. Af því tilefni hafa ýmis félagasamtök og stofnanir lagt á ráðin og efna til hátíðardagskrár á sunnudag. Vigdís hefur stutt mjög mikið við gróðurvernd og hefur tekið mikinn þátt í starfi Skógræktarfélags Íslands, setið fjölda aðalfunda og er heiðursfélagi. Hún stofnaði Yrljusjóð sem dreifir plöntum til grunnsóla ár hvert og hefur stutt mörg önnur gróðurverndarfélög og landvernd almennt. 

Í tengslum við þessi merku tímamót hefur því verið rætt um aðkomu skógræktarfélaganna og er niðurstaðan sú að félögin, ásamt sveitarfélögum um land allt, standi saman að gróðursetningu laugardaginn 27. júní. Fyrirhugað er að gróðursetja þrjár trjáplöntur á hverjum stað líkt og Vigdís gerði með táknrænum hætti í forsetatíð sinni víða um land ásamt börnum frá viðkomandi stað. Gróðursett var gjarnan eitt tré fyrir stúlkur eitt fyrir pilta og eitt fyir framtíðina. 

Gróðursetning á Ísafirði fer fram kl. 14 í Karlsárskógi, nokkuð innan við skíðaveg. Piltur og stúlka gróðursetja ásamt bæjarstjóra. Trjáplönturnar verða væntanlega allar af stofni Emblubirkis og stærð trjánna um 1.5 – 1.8 m á hæð, en af þeim stofni vaxa fönguleg tré. Á eftir verður boðið upp á kaffiveitingar og gengið verður um skóginn en hann er orðinn mjög fallegur.
« Mars »
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31