Hátíðasamkoma til heiðurs Ásgeiri Sigurðssyni áttræðum
Mánudaginn 11. nóvember verður Ásgeir Sigurðsson fyrrverandi skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga áttræður. Af því tilefni verður haldin hátíðarsamkoma í Sunnulækjarskóla á Sslfossi honum til heiðurs þetta kvöld kl. 20.30. Þar koma m.a. fram hljóðfæraleikarar, söngvarar og kennarar sem starfað hafa með Ásgeiri í þau tæpu sextíu ár sem hann hefur búið á Selfossi.
Ásgeir Sigurðsson er Dýrfirðingur að ætt og uppruna.
Ásgeir stofnaði Lúðrasveit Selfoss og stjórnaði henni í fimmtíu ár, stjórnaði Karlakór Selfoss í rúman áratug og var skólastjóri Tónlistarskóla Árnesinga í rúma tvo áratugi. Ásgeir lék í hljómsveit Óskars Guðmundssonar í rúman áratug. Það var mikill fengur að fá Ásgeir Sigurðsson til starfa hér austur fyrir fjall og njóta leiðsagnar hans. Hann hefur haft stórkostleg áhrif á tónlistaruppeldi Sunnlendinga í þennan tíma og verið samfélaginu ómetanlegur með störfum sínum. Fyrir það viljum við þakka með því að halda honum heiðurssamkomu á afmælisdagi hans 11. nóv. kl. 20.30. í Sunnulækjarskóla á Selfossi.
Björn Ingi Gíslason
Selfossi