A A A
  • 1964 - Hermann Drengsson
18.07.2014 - 13:35 | Vestfirska forlagið,Björn Ingi Bjarnason

Hafliðadagurinn í Sunnlenska bókaffinu á Selfossi 16. júlí 2014

F.v.: Bjarni Harðarson, Gerður Matthíasdóttir og Ólafur Bjarnason.
F.v.: Bjarni Harðarson, Gerður Matthíasdóttir og Ólafur Bjarnason.
« 1 af 9 »

Hafliðadagurinn var haldinn hátíðlegur með menningardagskrá í Sunnlenska bókakaffinu á Selfossi miðvikudaginn 16. júlí 2014.

Það voru  Sunnlenska Bókakaffið, Hrútavinafélagið Örvar og Vestfirska forlagið á Þingeyri , og er 20 ára i ár,  er stóðu að dagskránni sem er haldin ár hvert í minningu Hafliða Magnússonar (1935-2011) rithöfundar og alþýðu listamanns frá Bíldudal sem bjó á Selfossi síðstu æviárin.

 

Eftirtaldir stígu á stokk:

Skagfirðingurinn og skáldið Kristján Runólfsson í Hveragerði

Ingibjörg Elsa Björnsdóttir, þýðandi, ljóðskáld og sagnahöfundur

Bjarni Harðarson rithöfundur og bókaútgefandi á Selfossi

Björn Ingi Bjarnason, forseti Hrútavinafélagsins Örvars á Suðurlandi

 

Þá var –Bókalottó-  frá Vestfirska forlaginu á Þingeyri  þar sem  Gerður Matthísadóttir frá Þingeyri dró út fjölda bókavinninga en hún hefur búið á Selfossi í nær 40 ár ásamt manni sínum Ólafi Bjarnasyni sem líka er frá Þingeyri.

 

Menningarkakó Hrútavinafélagsins var í boði Sunnlenska bókakaffisins.
Samkoman var fjölmenn og fór hið besta fram ens og  venju er til á Hafliðadögum.

« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30