A A A
  • 1950 - Margrét Guðjónsdóttir
  • 1955 - Angantýr Valur Jónasson
01.09.2016 - 15:09 | Wikipedia, frjálsa alfræðiritið,Vestfirska forlagið,timarit.is,Sögulegur fróðleikur

Gullfoss til Önundarfjarðar og Dýrafjarðar fyrir rétt um 100 árum

Gamli Gullfoss við bryggju á Flateyri árið 1928.
Gamli Gullfoss við bryggju á Flateyri árið 1928.
« 1 af 4 »

Þetta mátti lesa í dagblaðinu Vísi þann 22. ágúst 1916.

E.s. GULLFOSS fer héðan til Stykkishólms, Flateyar, Patreksfjarðar, Ísafjarðar, Sigiufjarðar og Akureyrar föstudag 25. ágúst,

Skipið fer frá Akureyri  2 . september , kemur við á Ísafirði, Önundarfirði, Dýrafirði og Ólafsvík, væntaniega til Reykjavíkur 5 . september

 — Héðan fer skipið áleiðis tii New York 7, september að kveldi.

Eimskipafélag Islands. 

 

________________________

 

Um gamla Gullfoss

Gullfoss var fyrsta skip Eimskipafélags Íslands og kom í fyrsta sinn til Reykjavíkur 16. apríl 1915. Var þá almennur frídagur í bænum og mikið fagnað.

Þetta fyrsta vélknúna millilandaskip Íslendinga var smíðað í Kaupmannahöfn og var ganghraði þess 11 sjómílur á klukkustund. Í því var rými fyrir 74 farþega og sigldi skipið með fólk og varning, ýmist milli Íslands og Bandaríkjanna og Íslands og Evrópu, auk þess að stunda strandsiglingar hér. Skipið kom hlaðið af vörum frá útlöndum en fyrsta sigling þess með farm eftir að heim kom var farin til Hafnarfjarðar 19. apríl og var þá öllum boðið að fara með ókeypis sem vildu. 400-500 manns notfærðu sér það boð.

Gullfoss varð innlyksa í Danmörku við hernámið 1940 og var undir yfirráðum Þjóðverja til stríðsloka. Þá fannst skipið illa farið í Kiel og var selt til Færeyja þar sem það nefndist Tjaldur.

Gullfoss var rifinn 1953 í Hamborg í Þýskalandi.


« Apríl »
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30